Þjóðann Baltasar sigurvegari Viðarstauks
Þjóðann Baltasar sigurvegari Viðarstauks

Tónlistarkeppnin Viðarstaukur (sem dregur nafn sitt af Woodstock hátíðinni frægu) var haldin 14. október s.l. í 44. skipti hér í MA. Ellefu lög voru flutt og yfir 120 nemendur, foreldrar og kennarar mættu til að hlýða á. Sigurvegari kvöldsins var Þjóðann Baltasar 3IL en hann flutti lagið Wicked Game eftir Chris Isaak. Í öðru sæti voru þær Tinna 2V og Írena Rut 2G með lagið Valerie með Amy Winhouse og í þriðja sæti var hljómsveitin Erectus (Gísli 3IL, Benóní 3IL og Alvar Breki 3IL) sem flutti lagið Drull eftir þá sjálfa.