Opnað hefur verið fyrir óskir um töflubreytingar í Innu, en tekið er við beiðnum til miðvikudagsins 26. ágúst. Nemendur geta fylgt leiðbeiningum um töflubreytingar sem eru á heimasíðu skólans.

Hafið í huga:

  • beiðnir um töflubreytingar sem byggðar eru á vina- eða kennaranótum verða líkast til ekki samþykktar nema mjög góðar ástæður liggi að baki
  • nemendur verða að fylgjast með stundatöflunum sínum í INNU til þess að sjá hvort breytingar hafa verið samþykktar eða ekki
  • rafrænar beiðnir eru afgreiddar daglega

Vinsamlegast athugið að það kann að þurfa að fletta áfram um eina viku í stundatöflu til að sjá alla stundatöfluna.

Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við brautarstjóra:

Alma Oddgeirsdóttir, brautarstjóri félagsgreinabrautar, mála- og menningarbrautar og kjörnámsbrautar (alma@ma.is)

Valdís Björk Þorsteinsdóttir, brautarstjóri heilbrigðisbrautar, náttúrufræðibrautar og raungreina- og tæknibrautar (valdis@ma.is)