Tryggvi Gíslason fyrrverandi skólameistari MA
Tryggvi Gíslason fyrrverandi skólameistari MA

Tryggvi Gíslason fyrrverandi skólameistari MA lést 8. júní 2026. Hann varð skólameistari MA 1972, aðeins 34 ára að aldri, og gegndi því embætti allt til ársins 2003, með tveimur hléum þá við nám og önnur störf. Hann stýrði því skólanum í ríflega þrjá áratugi í gegnum heilmikla breytingasögu og setti sterkan svip á skólalífið. Umtalsverðar breytingar urðu á námsskipulagi skólans, einkum árið 1980 þegar gamla bekkjakerfið var lagt af og tekið upp bekkjabundið áfangakerfi sem núverandi kerfi byggir í raun á.

Tryggvi hélt sögu skólans mjög á lofti og rakti sögu hans allt aftur til stólskólans á Hólum í Hjaltadal, sem stofnaður var í upphafi biskupstíðar Jóns helga Ögmundarsonar árið 1106. Á skólameistaraárum hans var nýtt skólahús reist, sem fékk einmitt nafnið Hólar, og nýtt heimavistarhús. Í hans huga var skólinn landsmenntaskóli og átti að þjóna nemendum allsstaðar að á landinu.

Þegar Tryggvi varð áttræður, 11. júní 2018, var birt hér á heimasíðu skólans afmælisgrein eftir Björn Vigfússon sögukennara sem við endurbirtum núna.

Menntaskólinn á Akureyri sendir Margréti Eggertsdóttur eftirlifandi eiginkonu Tryggva, börnum hans og fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur, með þakklæti fyrir liðna áratugi og framlag hans til skólans og menntunar.