Ólafur H. Jónsson frá HA ásamt Elvari Birni Ólafssyni og Viktori Franz Bjarkasyni. Á myndina vantar …
Ólafur H. Jónsson frá HA ásamt Elvari Birni Ólafssyni og Viktori Franz Bjarkasyni. Á myndina vantar Orra Pál Pálsson sem var liðsfélagi þeirra.

Árlega er haldin forritunarkeppni framhaldsskólanna á vegum HR og HA. Alls tóku 12 lið frá MA þátt í henni eða um 30 nemendur og náðu tvö lið verðlaunasætum. Í keppninni þurfa nemendur að skrifa smáforrit sem leysa mis þungar þrautir og safna þannig stigum.

Á heimasíðu HR segir um keppnina: ,,Við fengum til okkar óvenju stóran hóp nemenda frá MA en Ingvar stærðfræðikennari þar hefur staðið sig sérstaklega vel í því að hvetja nemendur sína til að taka þátt. Keppnin hefur verið haldin á Akureyri í yfir tíu ár eða allt frá því að tölvunarfræði samstarf HA og HR hófst. Það felur í sér að hægt er að stunda þriggja ára B.S nám í tölvunarfræði HR á Akureyri í samstarfi við HA."

Ólafur H. Jónsson verkefnastjóri í HA kom í vikunni og afhenti verðlaunahöfum í forritunarkeppninni verðlaun.

Í alfa deild (sterkasta deildin) náði liðið "Forhitað eða ristað?" þriðja sæti. Liðið var skipað þeim Elvari Birni Ólafssyni, Orra Páli Pálssyni og Viktori Franz Bjarkasyni sem allir eru í 3. bekk.  

Í delta deild náði liðið "SyntaxErrorTeymið" einnig þriðja sæti. Liðið var skipað Ármanni Snæ Heimissyni, Ármanni Gunnari Benediktssyni og Denys Ivanko en þeir eru í 2. bekk.