Unnar Vilhjálmsson
Unnar Vilhjálmsson

Forseti Íslands sæmdi 15 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu 17. júní 2025. Einn þeirra var Unnar Vilhjálmsson íþróttakennari við MA og frjálsíþróttaþjálfari, fyrir framlag til íþrótta- og félagsstarfa með börnum. Það er óhætt að segja að Unnar á þessa viðurkenningu skilið, enda óþreytandi í starfi sínu með ungu fólki. Við samstarfsfólk hans í MA óskum Unnari innilega til hamingju og erum afar stolt og glöð með þessa orðuveitingu.