Samsett mynd. Fésbókarsíða MORFÍs og ma.is
Samsett mynd. Fésbókarsíða MORFÍs og ma.is

Úrslit í MORFÍs ráðast föstudaginn 19. apríl í Háskólabíói. Menntaskólinn á Akureyri etur kappi við sterkt lið Flensborgar. Skólarnir þræta um veru Íslands í NATO, Flensborgarskólinn er með en MA á móti.

Ræðumenn MA eru: Benjamín Þorri Bergsson 2X, Krista Sól Guðjónsdóttir 3FL og Heiðrún Hafdal Björgvinsdóttir 3FL. Liðsstjóri er Reynir Þór Jóhannsson 2FL. Auk þeirra skipa Þórhallur Arnórsson 2FL og Sjöfn Hulda Jónsdóttir 3T lið MA. Þau eru svokallaðir „liðsmenn í sal“.

Undirbúningur fyrir úrslitarimmuna stendur nú sem hæst. Við sendum góðar kveðjur til okkar fólks og segjum áfram MA!