Dagana 22.–26. október fór hópur nemenda úr MA ásamt tveimur kennurum í náms- og menningarferð til Parísar. Ferðin heppnaðist í alla staði frábærlega og var dagskráin þéttskipuð af skemmtilegri upplifun, franskri menningu og góðum mat.

Við skoðuðum meðal annars Louvre-safnið, glæsilega Garnier-óperuhúsið, Notre-Dame, Montmartre og Sacré-Cœur. Við gengum um Mýrina, heimsóttum Eiffelturninn, röltum um önnur falleg hverfi borgarinnar, kíktum í verslanir og nutum franskra kræsinganna. Einn af hápunktum ferðarinnar var svo sigling á Signu þar sem við sáum París frá nýju sjónarhorni.

Nemendur fengu líka tækifæri til að láta frönskukunnáttuna reyna á í raunverulegum aðstæðum, meðal annars með því að panta mat og eiga samskipti við heimamenn á frönsku.

Þrátt fyrir fréttir af mótmælum í París dagana fyrir brottför urðum við ekkert vör við þau og gekk ferðin eins og í sögu. Nemendur stóðu sig vel, góður andi ríkti í hópnum og gleðin var aldrei langt undan. Hópurinn sneri heim með fullt af góðum minningum og skemmtilegri reynslu í farteskinu.

Merci Paris, à bientôt !

Anna Eyfjörð