Mynd: Þórhallur Jónsson
Mynd: Þórhallur Jónsson

Fjölmörg verðlaun og viðurkenningar voru veitt við brautskráningu 17. júní.

Aðalheiður Ingvarsdóttir: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi á heilbrigðisbraut. Aðalheiður brautskráðist með ágætiseinkunn.

Árni Stefán Friðriksson: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í eðlisfræði og stærðfræði. Verðlaun úr Hjaltalínssjóði fyrir samanlagðan árangur í íslensku og ensku. Árni Stefán er dúx skólans og fékk gullugluna, heiðursmerki skólans.

Ásta Hlín Arnarsdóttir: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í dönsku.

Bjartmar Svanlaugsson: Viðurkenning fyrir trausta forystu og stjórn í félagsmálum.

Hanna Marín Hauksdóttir: Verðlaun fyrir óaðfinnanlega skólasókn allar annirnar í MA.

Hanna Sigríður Njálsdóttir: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi á félagsgreinabraut. Hanna Sigríður brautskráðist með ágætiseinkunn.

Hákon Snorri Rúnarsson: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í efnafræði.

Helga Björg Kjartansdóttir: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í þýsku.

Herdís Agla Víðisdóttir: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í líffræði. Herdís Agla brautskráðist með ágætiseinkunn.

Herdís Mist Kristinsdóttir: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum.

Ingþór Bjarki Brynjólfsson: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í stærðfræði.

Kristján Geir Hirlekar: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í efnafræði.

Lilja Gull Ólafsdóttir: Viðurkenning fyrir óaðfinnanlega skólasókn allar annirnar í MA.

Óskar Daníel Welding: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í eðlisfræði. Óskar Daníel brautskráðist með ágætiseinkunn.

Óttar Örn Brynjarsson: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í heilsu- og lífstílsáföngum.

Reynir Yiyou Eyfjörð Davíðsson: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í frönsku.

Sessilía Sól Kristinsdóttir: Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi.

Sigrún Freygerður Finnsdóttir: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í frönsku. Sigrún fékk líka stúdentaverðlaun Samtaka tungumálakennara á Íslandi sem nú eru veitt í fyrsta sinn. Hún fékk þau fyrir einstakan metnað og áhuga í tungumálanámi sínu. Verðlaunin eru bókin Eitt þúsund tungumál og 100.000 krónur sem eiga að nýtast í ferðalag eða til frekara tungumálanáms.

Sigrún María Pétursdóttir: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í ensku. Sigrún María brautskráðist með ágætiseinkunn.

Sólveig Erla Baldvinsdóttir: Menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi. Sólveig Erla hlaut einnig hvatningarverðlaun MA. „Hvatningarverðlaun MA hlýtur nemandi sem hefur jákvætt viðhorf til náms, skólans og nemenda og hefur jákvæð áhrif á samfélagið í kringum sig.“ Hún brautskráðist með ágætiseinkunn.

Viktor Smári Sveinsson: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í stærðfræði. Viktor Smári brautskráðist með ágætiseinkunn.

Þórey Steingrímsdóttir: Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í félagsfræði, heimspeki, íslensku, sálfræði og sögu. Þórey er semidúx skólans.

Þórhallur Arnórsson: Verðlaun fyrir virkni og metnað á sviðslistabraut.

Auk þess brautskráðust Sóley Sif Jónsdóttir og Dögun Einarsdóttir með ágætiseinkunn.

Amanda Eir Steinþórsdóttir, Elías Dýrfjörð, Helga Björg Kjartansdóttir, Inga Rós Suska Hauksdóttir, Lilja Gull Ólafsdóttir, Kolfinna Ósk Andradóttir og Sóley Sif Jónsdóttir fengu rósir fyrir tónlistarflutning og söng. Einnig afmælisbarn dagsins Gabríel Esra Sigurðsson.

Verðlaun gáfu auk skólans: A4, danska sendiráðið, Efnafræðifélag Íslands, franska sendiráðið, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Höldur, Norðlenska, Norðurorka, Sjúkrahúsið á Akureyri, Skógarböðin, Samtök tungumálakennara á Íslandi, Sögufélagið, Stærðfræðifélag Íslands og þýska sendiráðið. Skólinn þakkar fyrirtækjum og stofnunum fyrir gjafirnar.