Amalía Nanna Júlíusdóttir
Amalía Nanna Júlíusdóttir

Nemendur og starfsmenn MA deila upplifunum sínum af námi og kennslu í samkomubanni með lesendum ma.is.

Ég heiti Amalía Nanna Júlíusdóttir og ég er í 2.F.

Ég hef tekið eftir því núna í samkomubanninu hvaða kennarar leggja sig fram við kennslu og hafa virkilegan áhuga á að sinna nemendum sínum. Ég tek líka eftir því hvað bekkurinn minn er góður og hvað við erum sterk saman og hjálpumst að. Ég sakna skólans, kennaranna og krakkanna. Þetta er öðruvísi og erfitt á köflum en með skipulagi, góðri aðstoð og samskiptum við kennara er þetta vel hægt.