Samsett mynd án aðkomu gervigreindar
Samsett mynd án aðkomu gervigreindar

Við höldum ótrauð áfram að grafa upp gersemar í plötusafni skólans. Við fullkomnum verkið með því að setja plöturnar á fóninn og leyfum tónum og tali að hljóma aftur innan veggja skólans eftir ártugalangt hlé. Í apríl er upplagt að kveða burt snjóinn og ganga mót sólu með blöndu af „visku“ forfeðranna og gömlum slögurum. Þess vegna höfum við tekið saman nokkrar vel valdar vínylplötur sem ýmist geyma frásagnir, ræður eða upplestur þekktra einstaklinga í sögunni eða tónlist sem sló met á vinsældarlistum og hvert mannsbarn þekkir. Elanor, Bowie, Faulkner, Moeyt, Sinatra, Yoko og öll hin í músík og máli í aprílmánuði.