- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Fyrsti bekkur í náttúrulæsi fór í langþráða vorferð í Mývatnssveit í síðustu viku, ásamt nemendum á íslenskubrú og kennurum.
Nemendur fóru í fjórum rútum og hver hópur um sig fór á sex mismunandi stöðvar. Ein stöðin var ganga á Hverfjall, þar sem víðsýnt er yfir Mývatnssveitna. Hópar sem gengu á fjallið fyrir hádegi fengu blíðskaparveður, en eftir hádegið fór að hvessa svo sandur og ryk þyrlaðist yfir mannskapinn. Önnur stöðin fól í sér jarðhita og eldgos með skoðun við Námaskarð og Grjótagjá. Svo tók við stopp við gervigígana við Skútustaði þar sem komið var inn á myndun þeirra. Fuglasafn Sigurgeirs var heimsótt og að lokum Dimmuborgir í öllu sínu veldi þar sem nemendur gengu um friðlýst svæðið og dáðust að þessum sérstöku hraunmyndunum sem þar er að finna.
Hlýtt var í veðri og gekk ferðin ljómandi vel, það voru þreyttir en sælir ferðalangar sem komu heim seinni part dags.