DANS2BB05 - Almennur dönskuáfangi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum fá nemendur þjálfun í öllum færniþáttum tungumálsins auk þess sem þeir kynna sér danska menningu og siði. Áhersla er lögð á að nemendur bæti orðaforða sinn og æfist í notkun málsins bæði munnlega og skriflega. Áfanginn byggir meðal annars upp á leiðsagnamati þar sem nemendur fá endurgjöf frá kennara og geta þannig tekið framförum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- danska menningarsvæðinu og hvernig danska nýtist á norræna menningarsvæðinu almennt
- fjölbreyttum leiðum varðandi áframhaldandi nám í Danmörku
- orðaforða til undirbúnings náms á háskólastigi
- helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður sem og algengustu orðasambönd sem einkenna það
- lesa fjölbreyttar gerðir texta og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð textans eða viðfangsefnisins
- tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
- rita margs konar texta, formlega og óformlega, og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
- beita meginreglum danskrar málfræði og setningafræði
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni, inntak erinda og annað tiltölulega flókið efni sem hann hefur kynnt sér
- tileinka sér innihald ritaðs texta og nýta það á mismunandi hátt
- lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynnt og geta brugðist við og tjáð skoðanir sínar um efni þeirra
- lesa á milli línanna og átta sig á dýpri merkingu texta
- tjá sig hiklaust um efni sem nemandi sem nemandinn hefur kynnt sér
- skrifa læsilega texta um efni sem unnið hefur verið með
- leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
- þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
- meta eigið vinnuframlag