Einingafjöldi: 5 eða 6
Þrep: 3
Í boði fyrir: Áfanginn er eingöngu ætlaður nemendum í 3. bekk. Nemendur sem hafa tekið allt sitt dönskunám við MA ganga fyrir við inntöku í áfangann.
Forkröfur: DANS2AA05
Námsmat: Símatsáfangi þar sem námsmat byggist á fjölbreyttum verkefnum. Nemendur eru hafðir með í ráðum þegar kemur að útfærslu á námsmati og verkefnum áfangans
Kostnaður: Nemendur bera sjálfir kostnað af ferð til Kaupmannahafnar
Námsefni: Efni frá kennara
Annað: Áfanginn telst til sérgreina á mála- og menningarbraut og hafa nemendur á þeirri braut forgang í áfangann, svo fremi sem þeir uppfylla reglur skólans um mætingar. Ferðin er farin í nafni skólans og þátttakendum er skylt að fylgja fyrirmælum kennara og taka þátt í allri dagskrá ferðarinnar til að standast áfangann. Bent er á skólareglur á vef MA. Athugið að skráningu fyrir áfangann vorið 2027 er lokið.
Valáfangi fyrir nemendur sem hafa áhuga á að bæta við sig dönsku og kynna sér námsmöguleika á Norðurlöndum. Áfanginn hentar sérstaklega nemendum sem eru að íhuga nám á Norðurlöndum eða vilja kynna sér betur hvaða möguleikar eru í boði.
Í áfanganum vinna nemendur með fjölbreytt efni sem tengist meðal annars námi, daglegu lífi, eigin áhugasviði og framtíðaráformum. Nemendur kynna sér mismunandi skóla, námsleiðir og lýðháskóla á Norðurlöndum og vinna sjálfstætt að fjölbreyttum verkefnum. Einnig er litið til nærsamfélagsins og viðfangsefni áfangans tengd við umhverfi nemenda.
Hluti af áfanganum er ferð til Kaupmannahafnar í opinni skólaviku. Þar fá nemendur tækifæri til að kynna sér mismunandi námsmöguleika, meðal annars háskólanám og lýðháskóla. Nemendur skoða einnig borgina og fá tækifæri til að nota dönsku við raunverulegar aðstæður.