Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EÐLI2TV05
Í boði fyrir: Heilbrigðisbraut, náttúrufræðibraut og raungreina- og tæknibraut
Námsefni: Frá kennurum
Námsmat: Símat
Annað: Telst til sérgreina heilbrigðisbrautar, náttúrufræðibrautar og raungreina- og tæknibrautar
Efni þessa áfanga er samsett úr ýmsum greinum eðlisfræðinnar. Farið verður í grunnhugtök í varmafræði og helstu lögmál hennar kynnt. Við skoðum einnig kjarneðlisfræði og hagnýtingar hennar, kynnumst stjarneðlisfræði og lærum grunnatriði í jarðeðlisfræði, s.s. bylgjubrots- og viðnámsmælingar.