Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EÐLI2TV06
Efni þessa áfanga er eðlisfræði raf- og segulsviða og fyrirbæra þeim tengdum. Umfjöllunin er bæði formlegri og óhlutstæðari en í fyrri áfanga um rafrásir. Meginefni áfangans er rafsvið, þéttar, lögmál Gauss, rásir með þéttum, riðstraumur, segulsvið og samband raf- og segulsviðs, span og lögmál Faradays og rafsegulbylgjur. Lögð er áhersla á verklegar æfingar sem tengjast efni áfangans.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Gausslögmálinu fyrir rafsvið
- skilgreiningu rafsviðs og rafflæðis
- skilgreiningu á spennu og spennumun í rafsviði
- þéttum
- fyrirbærinu þétti og geti reiknað rýmd og orkuinnihald einföldustu þétta
- rafsviði og spennu
- beitingu á Gausslögmáli til þess m.a. að reikna út rafsvið í plötuþétti
- segulsviði
- rafagnageislum
- rafsegulöldum
- hegðun rásar með þétti og mótstöðu
- síseglum og segulsviði
- sambandi straums og segulsviðs
- lögmáli Laplace og lögmáli Biot-Savart
- kröftum sem verka á hlaðnar agnir í rafsviði og segulsviði
- skilgreiningu segulflæðis og geti beitt lögmáli Faradays um span
- sjálfspani og hegðun sveiflurásar
- riðstraumi
- riðstraumi og eiginleikum riðstraumsrása með raðtengingu viðnáms, spólu og þéttis
- rafsegulöldum og tengslum þeirra við jöfnur Maxwells
- samliðun ljóss sem farið hefur í gegnum raufagler og notkun raufaglers við litrófsgreiningu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita Gausslögmáli fyrir rafsvið
- fjalla um rafsvið og spennu
- reikna rásir með þéttum
- gera grein fyrir segulsviði
- fjalla um rafagnageisla
- leysa verkefni um span
- leysa ýmis verkefni þar sem riðstraumur kemur við sögu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita skipulegum aðferðum við að leysa verkefni úr þeim efnisþáttum sem teknir eru fyrir í áfanganum
- gera verklegar tilraunir úr efninu, skrá niðurstöður sínar skipulega og vinna úr þeim