Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EFNA3LE05 eða EFNA3LR05
Annað: Áfanginn telst til sérgreina heilbrigðisbrautar, náttúrufræðibrautar og raungreina- og tæknibrautar

Áfanganum er ætlað að veita ákveðna innsýn í hvernig læknar og aðrar heilbrigðisstéttir nota lyf til lækninga. Í áfanganum er farið í almenna lyfjafræði og fjallað stuttlega um sögu lyfjafræðinnar. Meðal annars verður fjallað um aðgengi lyfja, lyfjaform, staðbundna verkun, almenn verkun sem og efnahvörf lyfja. Fjallað verður um fráhvörf lyfja og lyfjaþol, lyfjamisnotkun og lyfjafíkn. Teknir verða fyrir helstu lyfjaflokkarnir þ.e. sýklalyf, sveppalyf, veik og sterk verkjalyf, stera, ópíumlyf, þunglyndislyf, róandi og kvíðastillandi lyf og hjartalyf. Gestakennarar verða í áfanganum sem veita nemendum innsýn inn í starf heilbrigðistengdra stétta.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hugtökum sem notuð eru varðandi frásog, dreifingu, umbrot og útskilnað lyfja
  • helstu lyfjaformum, kostum þeirra og göllum
  • helstu flokkum og áhrifum sýklalyfja
  • áhrifum sveppalyfja, verkjalyfja, stera, ópíumlyfja, þunglyndislyfja, róandi og kvíðastillandi lyfja og hjartalyfja
  • uppbyggingu sérlyfjaskrár

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • leita að upplýsingum um lyf á netinu
  • geta útskýrt frásog, dreifingu, umbrot og útskilnað lyfja í ákveðnum lyfjaflokk ásamt algengum lyfjaformum í þeim flokki

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • miðla upplýsingum um ofangreind lyf til annarra
  • átta sig á tenglum aukaverkana lyfja við verkun þeirra
  • sýna skilning á verkun ofangreindra lyfja með tilliti til verkunarmáta þeirra
  • sýna skilning á verkun tiltekinna lyfja með tilliti til verkunarmáta þeirra
  • miðla upplýsingum um helstu lyfjaflokka til annarra
  • átta sig á tengslum aukaverkana lyfja við verkun þeirra
  • stunda áframhaldandi nám í lyfjafræði og þeim greinum heilbrigðisvísinda þar sem lyfjafræði kemur við sögu