Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Í boði fyrir: Allar brautir
Námsmat: Áfanginn er próflaus og byggist á símati
Annað: Áfanginn telst til sérgreina brauta mála- og menningarbrautar og félagsgreinabrautar
Margir nemendur á félagsgreinasviði stefna á háskólanám í félagsgreinum og þessi enskuáfangi er saminn sérstaklega með þarfir þess hóps í huga og sem svar við því að megin hluti af háskólanámi í þess konar greinum fer fram á ensku. Lögð er áhersla á að enskur orðaforði sem er kynntur og notaður í þessu námskeiði sé á sviði sálfræði, félagsfræði og mannfræði, ásamt góðum almennum orðaforða í ensku. Í áfanganum verða skoðaðar sögur af alvöru glæpum frá enskumælandi löndum, frægar glæpabókmenntir eftir enskumælandi höfunda, kunna morðingja og rannsóknir á glæpahegðun. Farið er í margvíslegt efni sem tengist þessu, svo sem texta, hlustunarefni, margmiðlunarefni og fleira. Nemendur vinna í hópum eða að einstaklingsverkefnum og nýta sér orðabækur og rafræn hjálpargögn. Áhersla er lögð á sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ýmsum málefnum tengdum glæpum í samfélagslegu samhengi
- birtingamyndum glæpa í dægurmenningu, bókmenntum og fleiru
- uppbyggingu glæpatengdra bókmenntatexta og sjónvarpsþátta og mynda
- flóknari og sértækari orðaforða sem tengist efni áfangans
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- taka virkan þátt í samskiptum og beita málfari við hæfi
- skrifa skapandi texta og tjá munnlega
- lesa og greina bókmenntaverk
- greina söngtexta
- lesa texta sem byggja á sértækum orðaforða
- fylgast með söguþræði og átta sig á uppbyggingu bíómynda og sjónvarpsþátta
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt og taka þátt í umræðum
- skrifa ýmiskonar texta og láta ímyndunaraflið og sköpunargleðina að njóta sín
- skilja án teljandi vandkvæða nokkuð flókna texta
- lesa á milli línanna og átta sig á dýpri merkingu í texta og sjónvarpefnis
- átta sig á tengslum og skyldueika í uppbyggingu glæpasagna og tengds sjónvarpsefnis