Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Fyrir: Allar brautir, en æskilegt er að nemandi hafi lokið 3 áföngum í ensku eða hafi mjög gott vald á málinu
Námsmat: Fimm viðtöl sem dreift er yfir önnina. Viðtölin gilda hvert 20% og mynda lokaeinkunn
Annað: Takmarkaður fjöldi tekinn inn. Áfanginn telst til sérgreina brauta á mála- og menningarbraut
Í þessum áfanga sem er valáfangi fyrir nemendur þriðja bekkjar er krafist afar agaðra vinnubragða og skipulagshæfni því áfanginn byggist á sjálfstæðum lestri bókmennta á ensku án reglulegrar leiðsagnar kennara. Nemandi velur sér fimm skáldsögur af kjörbókalista og les þær sjálfstætt. Listinn er byggður upp af skáldsögum sem almennt eru talin tímamótaverk á enskri tungu sem og bókum sem oft er vísað til. Á nokkurra vikna fresti hittir nemandinn kennarann og gerir munnlega grein fyrir lestri sínum á ensku. Umfjöllunin skal vera ítarleg og ígrunduð og mun kennarinn spyrja út í verkið og höfund þess.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- klassískum bókmentum og gildi þeirra
- höfundum klassískra bókmennta og áhrifum þeirra bæði á samtímann og seinni tíma þar sem við á
- stíl og málsniði skáldverkanna
- því tímabili sem skáldverkin spanna
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa sjálfstætt klassískar bókmenntir á ensku
- lesa dýpra í skáldverkin og túlka innihald þeirra
- tjá sig á ensku um skáldverkin og dýpri merkingu þeirra
- lesa á milli línanna og tjá sig um það sem þar er að finna
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera sér nákvæma grein fyrir innihaldi skáldverka
- ræða um innihald skáldverka á ensku
- gera sér ljósa grein fyrir og geta rætt um þemu skáldverka
- gera sér grein fyrir og geta rætt um stíl og málsnið skáldverka