Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Helstu markmið áfangans eru að nemendur kynnist fyrirbærum sem eðlis- og efnafræðin fást við, lögmálum sem þau hlíta og geti yfirfært þekkingu sína á þessum greinum á umhverfi sitt og umhverfisþætti. Einnig að þjálfa nemendur í vinnubrögðum sem einkenna vísindalegar rannsóknir.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- vísindum og vísindagreinum
- hraða, hröðun, krafti og massa, orku, þrýstingi, vinnu og afli
- orkubúskap jarðar
- orkuframleiðslu
- orkubylgjum og rafsegulrófinu
- hamskiptum og hamskiptaorku
- umhverfisáhrifum og loftslagsbreytingum
- helstu frumefnum og efnasamböndum
- lotukerfinu og þeim hugtökum sem tengjast því
- efnahvörfum og efnatengjum
- sýrustigi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota einingakerfið
- nota forskeyti
- nota einfaldar formúlur og leysa úr þeim
- fara eftir fyrirmælum við gerð tilrauna
- nota lotukerfið
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta unnið með mælieiningar og notað forskeyti
- leysa einföld eðlisfræðidæmi tengd hreyfingu og krafti
- teiknað einfalda mynd af atómi og geta raðað öreindum á rétta staði
- stilla efnajöfnur
- geta yfirfært þekkingu sína á daglegt líf