Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Meginefni áfangans er að styrkja sjálfsmynd nemenda og gera þá meðvitaða um áhrif hreyfingar, næringar og hvíldar á líkama og sál. Áhersla er lögð á rétta líkamsbeitingu við æfingar og í daglegu lífi. Áfanginn er verklegur en með fræðilegu ívafi og verkefnavinnu sem er í beinum tengslum við verklega tíma.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- áhrif þjálfunar (þol, styrk og liðleika) á líkama og sál
- gildi góðrar næringar og hvíldar fyrir heilsuna
- gildi grunnþjálfunar og fjölbreyttrar hreyfingar
- mikilvægi góðrar samskiptahæfni og eflingu félagsþroska
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- stunda fjölbreytta grunnþjálfun
- beita sér rétt við æfingar og störf
- vinna með öðrum
- hlusta á eigin líkama og þarfir og bregðast við af þekkingu og skynsemi
Hæfniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- temja sér heilbrigðan lífstíl varðandi meðal annars jafnvægi milli hreyfingar og hvildar
- vera meðvitaður um góða líkamsbeitingu við leik og störf
- finna hjá sjálfum sér mikilvægi hreyfingar og geta brugðist við því
- geta unnið í samstarfi við félaga