Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Lýsing á áfanga og kennsluþáttum: Meginefni áfangans er hreyfing, næring og geðheilbrigði. Unnið er með grunnþjálfun í hreyfingu. Fæðuflokkar og næring er skoðuð í samhengi þar sem fjölbreytni í fæðu er í fyrirrúmi. Skoðaðar eru rannsóknir og greinar sem sýna fram á gildi hreyfingar og næringar á geðheilbrigði.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- áhrifum mataræðis á líkama og sál
- helstu næringarefnum og hvaða áhrif þau hafa á líkamsstarfsemi
- áhrifum líkamsræktar á geðheilsu
- gildi hreyfingar sem mikilvægs þáttar í heilbrigði í víðum skilningi þess orðs
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- halda matardagbók
- velja sér fjölbreytta næringu
- viða að sér fræðilegu efni um geðheilbrigði
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa úr matardagbók með aðstoð kennara
- geta greint fæðuflokkana í máltíðum
- þekkja leiðir til að styrkja og efla gott geðheilbrigði
- geta brugðist við einkennum hjá sjálfum sér eða félögum þegar andlegra erfiðleika verður vart
- nota fjölbreytta hreyfingu sér til heilsubótar