Einingafjöldi: 5
Hæfniþrep: 1
Forkröfur: Engar

Námsmat: Mæting í ferðir (80% mætingaskylda) – 60%, verkefnavinna (dagbækur eftir ferðir og eitt hópverkefni) – 40%
Námsefni: Frá kennara
Annað: Áfanginn telst ekki til sérgreina brauta

Lýsing á áfanga og kennsluþáttum: Áfanginn byggist á útivistarstundum sem dreifast yfir tvær annir. Tilgangur útivistastundanna er að kynna nemendur fyrir mögulegum tækifærum til útivistar sér til heilsueflingar. Einnig að efla umhverfisvitund nemendanna og flétta saman líkamsrækt og læsi á jarðfræði nærumhverfisins. Nemendur eiga eftir áfangann að vera færir að útbúa sig skynsamlega til útivista og kunna að lesa í aðstæður hverju sinni. Útivistaferðirnar eru ekki farnar á skólatíma og gera þarf ráð fyrir að taka frá tíma til þess að ná að stunda vinnu í áfanganum. Meðal fyrirhugaðra útivistarferða eru fjallgöngur, hjólaferðir, gönguskíði/fjallaskíði og sjósund.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • forsendum útivistar og uppbyggingu ferðaáætlana
  • mikilvægi næringar, hvíldar og virkni í tengslum við veru úti í náttúrunni
  • nauðsynlegum útbúnaði, klæðnaði og réttri líkamsbeitingu við útivist
  • notagildi jarðfræðilegrar þekkingar og mikilvægi hennar til skilnings á umhverfinu
  • nærumhverfinu og möguleikum þess til útivistar.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • afla sér upplýsinga um útivist og umhverfi og útbúa raunhæfa ferðaá-ætlun
  • útbúa sig til ferða og fara um í íslenskri náttúru og veðurfari af öryggi og virðingu
  • beita hugtökum jarðfræði og landafræði á skilmerkilegan hátt og í rökrænu samhengi 
  • greina einstök náttúrufyrirbæri á víðavangi eftir útliti og eðli og geti nýtt fræðilega þekkingu sína við flokkun og túlkun jarðfræðilegra fyrirbæra
  • nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
  • geta lesið í umhverfi sitt og flokkað, aðgreint og tengt atriði eftir aðstæðum og samhengi
  • draga ályktanir um ólíkar aðstæður á Íslandi varðandi landslag og jarðmyndanir
  • tengja undirstöðuþætti útivistar, landafræði og jarðfræði við umhverfi sitt og fjalla á rök-rænan hátt um mikilvægi og notagildi þeirra fyrir daglegt líf

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • velja búnað til útivistar í samræmi við aðstæður (klæðnað, næringu o.s.frv.)
  • vita hvaða möguleikar eru í boði til útivistar til heilsueflingar
  • taka þátt í útivist þar sem krafist er sérstaks búnaðar, sé fær um að meta ástand og geti breytt áætlunum af öryggi ef aðstæður breytast