- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Þessi áfangi byggist á sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda og skipulagshæfni þeirra. Þeir velja sér hver um sig fjórar bækur af bókalista, lesa þær sjálfstætt á tilteknum tíma og gera kennara grein fyrir þeim í einkaviðtölum. Bækur sem nemendur lesa á önninni skulu vera samanlagt u.þ.b. 900-1000 síður. Nemendur lesa eina bók sameiginlega, þ.e.a.s. ein bók verður lesin af öllum nemendum – en sú verður fyrsta bók annarinnar. Að öðru leyti lesa nemendur bækur að eigin vali. Bókalistinn samanstendur af heimspekilegum bókmenntum, sem skilgreina mætti sem annað hvort heimspekiverk eða sem bókmenntaverk með heimspekilegum skírskotunum. Nemendur þurfa að undirbúa viðtalstímana og vera tilbúnir að segja frá bókinni.
Fyrir: Félagsgreinabraut og kjörnámsbraut, sviðslistir
Forkröfur: HEIM2SA05 (má taka samhliða)
Námsmat: Símat, ekkert lokapróf
Annað: Áfanginn telst til sérgreina félagsgreinabrautar og sviðslistahluta kjörnámsbrautar
Menntaskólinn á Akureyri
Eyrarlandsvegi 28
600 Akureyri
Kt. 460269-5129
Skrifstofutími
Mán - fim 08:00 - 16:00
Föstud 08:00 - 14:00
Lokað í hádeginu 12:00 - 13:00
Lokað um helgar
Ritstjórn: Brynjar K. Óttarsson, Eyrún Huld Haraldsdóttir og Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir