Fyrir hverja? Allar brautir
Forkröfur: Menningar- og náttúrulæsi
Námsefni: Skáldsögur sem nemendur velja sér (á bókasafni eða úr einkasafni) + efni frá kennara
Námsmat: Símat. Ekkert lokapróf.  
Annað: Áfanginn telst til sérgreina mála- og menningarbrautar

Viltu upplifa ævintýri? Í áfanganum er farið yfir íslenskan ævintýraheim barna og ungmenna í gegnum tíðina. Nemendur kynna sér t.d. bókmenntir, tímarit, tölvuleiki, leikverk, barnaefni og margt fleira sem einkennt hefur menningu barna og ungmenna fyrr og síðar. Nemendur lesa bækur auk þess sem þeir skoða greinar og fylgjast með umræðu um barna- og ungmennabækur á netinu. Nemendur kynnast höfundum og vinna sjálfstæð og fjölbreytt verkefni sem m.a. miða út frá þeirra eigin reynsluheimi. Ekkert lokapróf er í áfanganum.