Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Náttúru- og menningarlæsi
Í boði fyrir: Allar brautir
Námsefni: Skáldsögur sem nemendur velja sér (á bókasafni eða úr einkasafni) + efni frá kennara
Námsmat: Símat. Ekkert lokapróf
Annað: Áfanginn telst til sérgreina mála- og menningarbrautar
Nemendur kynnast fjölbreyttum heimi bókmennta, íslenskra og erlendra. Nemendur lesa nokkrar skáldsögur sem þeir velja í samráði við kennara. Annars vegar mæta nemendur í einkaviðtöl til kennara en hins vegar koma þeir saman í hóptímum, fjalla um sögur sínar og kynna fyrir nemendahópnum. Auk þess verða smásögur lesnar, þær ræddar og helstu bókmenntahugtök rifjuð upp. Í áfanganum er lögð áhersla á vinnusemi og sjálfstæð vinnubrögð nemenda.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi lestrar
- að bókmenntir eru spegill samfélaga og sýna fjölbreytileika þeirra
- helstu bókmenntahugtökunum
- formi og innihaldi smásagna annars vegar og skáldsagna hins vegar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina smásögur og skáldsögur og átta sig á muninum á þeim
- lesa á milli línanna
- fjalla um bókmenntir
- ígrunda, ræða og rökstyðja til að komast að niðurstöðu sem sett er fram á skýran hátt
- vinna að fjölbreyttum og skapandi verkefnum er snúa að bókmenntum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- dýpka og auka lesskilning sinn á bókmenntum af ýmsu tagi og verða þar með færari lesandi
- auka og bæta við orðaforða og málskilning
- leysa fjölbreytt verkefni tengd bókmenntum
- skrifa eigið efni og meta á gagnrýninn hátt verk annarra
- dýpka skilning sinn á fjölbreyttum samfélögum og margbreytileika fólks í gegnum skáldskap
- ræða um bókmenntir og gera grein fyrir máli sínu með rökum