Valáfangi þessi byggir á svipaðri formúlu og yndislesturinn, þ.e. fámennir hópar nemenda sem vinna við það sem þeim finnst skemmtilegt. Vinnan verður að mestu einstaklingsmiðuð. Í stað þess að lesa munu nemendur fá að skrifa smásögur, greinar, pistla, ljóð, texta, leikþætti, handrit, sketsa eða hvað svo sem þeir hafa áhuga á. Kennarinn leiðbeinir og hvetur nemendur áfram og þeir safna fjölbreyttum textum í eigulega möppu. Einnig mun kennarinn koma með nokkrar æfingar og fróðleik í sambandi við mismunandi stílbrögð og ritunarform en megináherslan er samt á sköpun og sjálfstæði nemenda.

Fyrir: Allar brautir

Forkröfur: Menningar- og náttúrulæsi

Námsefni: Efni frá kennara

Námsmat: Símat. Ekkert lokapróf

Annað: Áfanginn telst til sérgreina kjörnámsbrautar og mála- og menningarbrautar