Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE3FR05
Áfanginn er tvískiptur: Í fyrri hlutanum verður stiklað á stóru í íslenskri bókmenntasögu frá síðmiðöldum allt fram til 1900. Rýnt verður í inntak og form bókmennta og áhersla er lögð á ritun hvers konar, ekki síst frumsamda texta. Í seinni hlutanum munu nemendur lesa íslensk ljóð og þýdd frá öllum tímum með það fyrir augum að skilja mikilvægi þeirra í menningu þjóðarinnar. Lögð er áhersla á að þeir geti sett ljóðin í sögulegt samhengi og greint með hugtökum bókmennta- og bragfræði. Áhersla verður lögð á sköpun, að nemendur geti sett saman rétt kveðnar vísur og samið ljóð út frá eigin áhugasviði. Eins verður ljóðaflutningur tekinn til umfjöllunar og nemendur fá þjálfun í ljóðalestri. Hugtakið ljóð verður notað í víðum skilningi um persónulega, lýríska tjáningu sem spannar allt svið ljóðlistar frá trúarlegum ljóðum til dægurlaga og rapps.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu verkum lærdómsaldar með áherslu á Hallgrím Pétursson
- boðskap upplýsingarmanna með áherslu á Eggert Ólafsson
- áhrifum rómantíkur með áherslu á Jónas Hallgrímsson
- ólíkum gerðum ljóða að fornu og nýju
- bókmennta- og bragfræðihugtökum
- sögulegum bakgrunni ljóða og höfunda
- hvernig orðaforði og málfar hefur þróast í kveðskap
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að skilja og nota bókmennta- og bragfræðihugtök
- að flytja bundinn og óbundinn kveðskap
- að skilja ljóð frá öllum tímum
- greina efni og form ljóða og tengja við tímabil
- fjalla um bókmenntir í sögulegu samhengi
- gera grein fyrir einkennum bókmennta í ræðu og riti
- vinna með texta frá mismunandi tímum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- setja saman vísur og semja ljóð
- að túlka ljóð og setja í menningarlegt samhengi
- að skrifa vandaðan texta um ljóð og höfunda
- fjalla um og skilja helstu bókmenntaverk Íslendinga frá fyrri tíð
- skrifa vandaðar ritgerðir með fjölbreyttum stílbrögðum
- halda fyrirlestra og ræður á góðu íslensku máli og af öryggi