Einingafjöldi: 5
Þrep: 2

Fyrir: Allar brautir
Forkröfur: LÆSI2NÁ10
Námsmat: Símat, ekkert lokapróf
Annað: Áfanginn telst til sérgreina félagsgreinabrautar og mála- og menningarbrautar

Í áfanganum verður fjallað um landafræðina sem fræðigrein, helstu hugtök og aðferðir. Þjálfuð verður notkun korta og annarra landafræðigagna, bæði á prentuðu og stafrænu formi. Fjallað verður um fjarkönnun og nemendum kynntir möguleikar á að nota tölvur til framsetningar landfræðilegra gagna. Fjallað verður um náttúruauðlindir jarðar, nýtingu þeirra og misnotkun. Skoðuð verður misskipting auðlinda, og munur á auðlindanotkun iðnríkja og þróunarlanda. Fjallað verður um íbúafjölda í heiminum með tilliti til auðlindanotkunar. Sérstaklega verður fjallað um vatn sem eina mikilvægustu auðlind jarðar, svo og orkulindir og orkunotkun. Fjallað verður um veður og loftslag og nemendur aðstoðaðir við að lesa úr veðurspám. Helstu atvinnuvegir verða teknir til umfjöllunar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • öllu sem viðkemur legu álfa og landa á jörðinni
  • grunnhugtökum varðandi kort og kortagerð. Hvaða gerðir eru til af landakortum og hvernig má nota þau, jafnt á ferðalögum og til að setja fram upplýsingar
  • öllum þeim hugtökum sem notuð eru við manntöl og mannfjölda. Hvað ræður t.d. fæðingar- og dánartölum, hvers vegna er fólk að flytja á milli landa o.s.frv.
  • þeim öflum sem eiga sér stað á jörðinni, bæði við landmótun og allt sem viðkemur veðri og veðurfræði.
  • hugtakinu auðlind og þekki alls kyns nýtingu þeirra, misskiptingu og jafnvel misnotkun
  • helstu auðlindum Íslands. Notkun þeirra og stýringu á nýtingu
  • helstu hugtökum varðandi ýmsa atvinnuhætti og helstu tegundir samgangna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa og skilja texta þar sem hugtök landafræðinnar koma fyrir
  • merkja inn á heimskort öll lönd eða ríki sem þar eru
  • nýta landakort og það táknmál sem má sjá á þeim
  • lesa upplýsingar út úr allskyns þemakortum og nýta sér leiðir til að búa til slík kort
  • reikna tímamismun milli staða í heiminum
  • vinna upplýsingar og gera greinarmun á aðal- og aukaatriðum
  • vinna sjálfstætt við framkvæmd verkefna og geta útskýrt niðurstöður út frá verklýsingu eða fyrirmælum kennara

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vinna að verkefnum tengdum landafræði
  • tileinka sér það orðfæri sem þarf til að taka þátt í almennri umræðu tengdri landafræði
  • sjá samhengi milli ýmissa mismunandi þátta, hvað er orsök og afleiðing og hvernig eitt hefur áhrif á annað
  • leggja mat á upplýsingar sem tengjast greininni á gagnrýninn hátt
  • koma þekkingu sinni á framfæri með gerð kynninga þar sem áhersla er á flutning nemandans
  • geta skýrt frá ýmsum málum úr heimsfréttunum og geta sett þau í samhengi við fræðigreinina