Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í boði fyrir: Allar brautir
Námsefni: Duolingo (nemendur þurfa að kaupa áskrift) og margvíslegt efni frá kennara
Námsmat: Símat, sem byggir á því hversu langt nemendur fara í Duolingo og á nokkrum smærri verkefnum á önninni
Annað: Áfanginn telst til sérgreina á mála- og menningarbraut
Latína er sérstaklega gagnleg fyrir nemendur sem stefna á nám í lögfræði, læknisfræði, heimspeki, sagnfræði, guðfræði og tungumálum, þar sem fjöldi hugtaka á þessum sviðum á rætur að rekja til latínu. Hún auðveldar einnig nám í rómönskum tungumálum, svo sem frönsku, spænsku og ítölsku. Jafnframt veitir latínunám innsýn í sögu, bókmenntir og menningu Evrópu. Nemendur kynnast þannig ekki aðeins tungumáli heldur einnig hugmyndaheimi og sögu Rómverja sem hafa haft mikil áhrif á vestræn samfélög, vísindi, stjórnmál og réttarkerfi. Í þessum áfanga þurfa nemendur að kaupa aðgang að Duolingo, enda fer mestur tími námsins í gegnum það. Gervigreind verður notuð til fjalla um undirstöðuatriði latneskrar málfræði og tengsl latínu við tungumál og samfélög nútímans.
Námið fer fram utan blokka en kennari boðar nemendur fimm sinnum á sinn fund á önninni.