Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Fyrir hverja? Allar brautir en nemendur á kjörnámsbraut, sviðslistum, hafa forgang
Forkröfur: Engar.
Námsefni: Efni frá kennara.
Námsmat: Símat.
Annað: Áfanginn telst til sérgreina sviðslistabrautar
Í þessum áfanga er líkaminn helsta verkfærið. Kennslan fer að öllu leyti fram úti á gólfi þar sem unnið er af krafti með hreyfingu, spuna, flæði og líkamlega tjáningu.
Þú færð að ögra þér líkamlega, ná púlsinum upp og vinna með styrk, þol og líkamsvitund. Markmiðið er að þú verðir öruggari í eigin líkama, þorir að nota hann af meiri krafti og uppgötvir nýjar leiðir til að tjá þig í gegnum hreyfingu.
Áfanginn byggir á virkri þátttöku og líkamlegri vinnu í tímum. Nemendur halda einnig vinnubók og skila tveimur samantektum yfir önnina.