Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Farið verður í hlutverk söngs í leiksýningum, uppbyggingu og grundvallarforsendur söngleikja og tónlistar í leikhúsi. Áhersla er lögð á túlkun og tjáningu í söng ásamt kennslu á helstu undirstöðuatriðum söngs. Einnig verður fjallað um raddheilbrigði og beitingu raddarinnar.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- undirstöðuatriðum og grunntækni í söng
- aðferðum við túlkun og tjáningu söngtexta á leiksviði
- samvinnu söngs og leiks á leiksviði
- mismunandi stílum söngleikjaformsins
- raddheilbrigði
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- hita röddina upp sem hljóðfæri og verða meðvitaður um mikilvægi þess að hugsa vel um hana
- greina söngtexta og tilgang þeirra í söguþræði leikverks
- beita rödd í söng og leik
- nýta tækniæfingar til að bæta söng sinn enn frekar
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- flytja lag úr söngleik af innlifun á áhrifaríkan og skýran máta
- tengja saman rödd og tónheyrn
- greina og segja frá ólíkum aðferðum til að túlka og tjá texta í söng
- geta sagt frá og skrifað um söngleiki sem sviðslistaform
- nýta þekkingu sína í notkun á tónlist í leikhúsi