Einingafjöldi: 5
Þrep: 3

Í þessum áfanga er lögð áhersla á líkamlega færni, að uppgötva og rannsaka eigið hreyfimynstur. Nemendur kynnast ýmsum áhrifamönnum líkamsleikhússins og aðferðum þeirra. Auk þess skapa nemendur frumsamin verk sem krefjast sjálfsuppgötvunar, þróun vitundar í gegnum hreyfingu og samvinnu. Nemendur skrifa einnig gagnrýna greinagerð um líkamsleikhús að eigin vali og þurfa að huga að heimildaöflun og frágangi. Nemendur tileinka sér aðferðir til að nýta líkamann sem frásagnarform.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • áhrifafólki líkamsleikhússins og aðferðum þeirra
  • líkamanum sem heild (líkami, hugur og sál)
  • líkamanum sem frásagnarformi

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • efla líkamsvitund og líkamslæsi
  • efla líkamlega færni og kanna eigið hreyfimynstur

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skapa frásögn með líkamanum
  • framkvæma, skapa og flytja verk í hóp
  • nýta ólíkar aðferðir áhrifafólks í líkamsleikhúsi í sköpun sinni
  • skrifa gagnrýna greinargerð sem byggir á heimildum og rökstuðningi