Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Í boði fyrir: Kjörnámsbraut.
Forkröfur: Áfangar á 2. þrepi í leiklist, tónlist eða kvikmyndagerð
Námsefni: Efni frá kennara og miðar á viðburði sem nemendur greiða sjálfir fyrir.
Námsmat: Símat. Ekkert lokapróf.
Annað: Áfanginn telst til sérgreina kjörnámsbrautar.

Langar þig að kynnast betur lista- og menningarlífinu í kringum þig?

Í þessum áfanga sækir þú fjölbreytta listviðburði, svo sem leiksýningar, dans, myndlistarsýningar, gjörninga og hátíðir. Yfir önnina sækir þú að lágmarki fjóra viðburði og skráir upplifanir þínar og hugleiðingar í vinnubók.

Þú kafar dýpra í einn listviðburð og listamann og þróar einnig þína eigin draumasýningu með innblæstri frá því sem þú hefur upplifað í áfanganum.

Áfanginn byggir að mestu á sjálfstæðri vinnu utan hefðbundinnar stundatöflu, með leiðsögn kennara í nokkrum hóptímum.