Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Náttúrufræði er áfangi á fyrsta ári náttúrufræðibrauta. Honum er ætlað að skerpa sýn og auka skilning nemenda á landi sínu. Þar fléttast saman nám í jarðfræði, náttúrufræðum og landafræði.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu grunnhugtökum jarðfræði
- helstu fuglum, villtum íslenskum spendýrum til lands og sjávar
- nokkrum algengum plöntum
- þeim nátturuöflum sem mótað hafa landið frá myndun þess
- áhrifum náttúruhamfara á lífsskilyrði fólks, dýra og gróðurs
- mikilvægi vatns fyrir Íslendinga
- jarðfræðilegri legu landsins og sérstöðu þess
- landafræði Íslands
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa og skilja texta og nota kort af ýmsu tagi
- koma fram fyrir aðra og tala máli sínu á skýran og greinargóðan hátt
- skilja samspil manns og náttúru í gegnum tíðina og fram til dagsins í dag
- vinna með öðrum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna hugkvæmni við lausn verkefna
- sýna sjálfstæði og sköpun í vinnubrögðum
- sýna ábyrgð gagnvart náminu og skólanum
- meta upplýsingar og vinna með þær á þann hátt að þær skili honum þekkingu og aukinni hæfni til náms
- greina stöðu sína í því umhverfi sem hann lifir og hrærist í, bæði samfélaginu og náttúrulegu umhverfi