Áfanginn er ætlaður nemendum á heilbrigðis-, náttúrufræði- og raungreina- og tæknibraut.
Nemendur undirbúa sig fyrir framhaldsskólakeppnir í raungreinum, nánar tiltekið í líf-, stærð-, eðlis- og efnafræði auk forritunar. Áfanginn er heilsársáfangi og eru tímar einu sinni í viku. Í kennslustundum æfa nemendur sig á eldri keppnisverkefnum auk þess sem tekin eru fyrir valin efnisatriði af kennara þegar við á. Nemendur taka þátt í þeim raungreinakeppnum sem í boði eru á tímabilinu.
Fyrir: Heilbrigðisbraut, náttúrufræðibraut, raungreina- og tæknibraut
Námsmat: Mæting og þátttaka í tímum
Námsgögn: Efni frá kennara
Forkröfur: Að lágmarki einn áfangi í líf-, eðlis- og efnafræði.
Annað: Áfanginn telst til sérgreina heilbrigðisbrautar, náttúrufræðibrautar og raungreina- og tæknibrautar