Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar

Í boði fyrir: Allar námsbrautir

Námsefni: Námsefni frá kennara á Canvas og í kennslustundum
Námsmat: Símat sem byggir fyrst og fremst á þátttöku og mætingu í tíma ásamt litlum verkefnum, æfingum og kynningu í lok áfangans
Annað: Áfanginn er valáfangi í sögu og telst til sérgreina félagsgreinabrautar

Привет!

Hvað telur þú þig vita um Rússland? Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug? Stórt land, Pútin og babúska? Í áfanganum ætlum við að skella okkur í ferðalag um langa, blóðuga og stórbrotna sögu Rússlands. Aðal áhersla námskeiðsins verður á sögu landsins frá árinu 1900 þó við heimsækjum óhjákvæmilega einnig önnur tímabil. Við ætlum að kynnast keisurum, Anastasíu, Stalín, geimförum, kjarnorkuslysum, mafíunni og listamönnum. Við ætlum að hlusta á tónlist, skoða flókið stafróf, borða öðruvísi mat og spjalla saman á nýju tungumáli.

Svo ef þig langar að prófa eitthvað öðruvísi, læra eitthvað sem þú færð ekki í „venjulegum“ áfanga og jafnvel geta sagt „Привет!“ þegar þú kemur út úr kennslustofunni þá gæti þetta verið áfanginn fyrir þig. Þú þarft ekki að kunna neitt áður en við byrjum… Þú þarft bara að vera forvitin/nn/ið.