Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Fjallað verður um leiklistarsögu í grófum dráttum frá tímum Forngrikkja til dagsins í dag. Ítarleg umfjöllun verður um vestræna leiklistarsögu 20. aldar þar sem nemendur fá kynningu á helstu leikskáldum og áhrifavöldum leiklistarsögunnar. Þróun sögunnar verður skoðuð út frá viðmiðum og gildum samfélagsins á hverjum tíma. Einnig verður fjallað um íslenska leiklistarsögu og möguleg framtíðarsaga hennar skoðuð í fyrirlestrum og umræðutímum með leikhússtjóra LA.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu tímabilum leiklistarsögunnar og áhrifavöldum innan hennar
- hvernig tíðarandi, viðmið og gildi hafa haft áhrif á þróun leiklistarinnar
- íslenskri leiklistarsögu, þróun hennar og mótun og helstu áhrifavöldum
- þeim grunni sem nútímaleikhús er byggt á og hvert það stefnir
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tjá sig um helstu tímabil leiklistarsögunnar og áhrifavalda hennar í töluðu og rituðu máli
- greina af ígrundun áhrif viðhorfa og gilda samfélagsins á leikhús
- afla sér heimilda um leiklist og leiklistarsögu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tengja eigin hugmyndir um leikhús við leiklistarsöguna og geta tjáð sig um þær á ígrundaðan hátt
- gera sér grein fyrir þróun leiklistar í gegnum árin sem og skilning á ábyrgð sinni sem listamanns á framtíðarsöguna
- fjalla um helstu leikskáld og leikhúsfræðimenn 20. aldarinnar, íslenska sem erlenda
- nýta sér skilning sinn í eigin vinnu og sköpun