Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SAGA2FM05, SAGA2NÝ05 eða SAGA2SÖ05
Í áfanganum eru raktir helstu þættir í hinni samfelldu sögu menningar, lista og hugmynda á Vesturlöndum. Áhersla verður lögð á fjögur svið þessarar sögu, í fyrsta lagi klassíska menningu Grikkja og Rómverja, í öðru lagi miðaldamenning og kristindómur, í þriðja lagi endurreisn og upplýsingu og í fjórða lagi nútíma menningu. Ágripi af listasögu þessara sviða verður tvinnað við yfirferðina.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- innihaldi grunnhugmynda s.s. menningar, hugmynda, trúarbragða og stjórnmála
- helstu atriðum úr sögu fræða, vísinda og lista Vesturlanda
- helstu þáttum í þróun tækni og efnahags
- þróun samfélagsgerðar á Vesturlöndum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leita sér heimilda á mörgum ólíkum sviðum
- nota heimildir af veraldarvef
- afla sér heimilda úr nærumhverfi
- gera grein fyrir þekkingu sinni og skilningi með margskonar móti
- gera grein fyrir heimildum og aðferðum með viðurkenndum hætti
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna tengslin milli tækni, efnahags, þjóðfélagsgerðar og menningar
- sýna hvernig ákveðin menning birtist í listum
- nefna dæmi um hvernig landfræðileg og þjóðleg einkenni geta birst í menningu og hugmyndum
- greina menningu ólíkra hópa, t.d. kynja og stétta
- greina hlutverk fræða og vísinda í framvindu mannkynssögunnar
- meta hlutverk trúarbragða og þá þætti sem trúarbrögðum eru sameiginlegir