Fyrir: Alla nemendur
Forkröfur: LÆSI2ME10
Námsefni: Frá kennara
Námsmat: Símat í formi verkefna af ýmsu tagi á önninni
Annað: Áfanginn telst til sérgreina félagsgreinabrautar
Í áfanganum verður fjallað um það sem er efst á baugi í heiminum og á Íslandi í dag og reynt að skoða orsakir þess. Þá er ekki bara átt við það sem snýr að stjórnmálum og sögu, heldur einnig ýmislegt sem snýr að fjarlægum menningarheimum, trúarbrögðum o.s.frv. Þá verður einnig fjallað um kvikmyndir, bókmenntir, íþróttir, tónlist og fleira sem nemendum og kennara dettur í hug.
Útgangspunkturinn verður að jafnaði eitthvað sem er í umræðunni hverju sinni, t.d. Trump og yfirlýsingar hans um Grænland, Pútín og innrásin í Úkraínu, Epstein skjölin og fólk sem þar er að finna. Svo má ekki gleyma öllu því sem ekki hefur enn gerst þegar þessi áfangalýsing er skrifuð.