Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Sálfræði á öðru þrepi eða aðrar félagsgreinar. Enska á öðru þrepi.
Námsmat: Símat. Ekkert lokapróf
Námsefni: Uppeldi/kennslubók fyrir framhaldsskóla (vefbók). Efni frá kennara á Canvas
Annað: Áfanginn telst til sérgreina félagsgreinabrautar
Farið verður yfir uppeldismál á Íslandi í víðu samhengi, áhersla er lögð á aðstæður íslenskra barna, þær bornar saman við aðstæður barna víðsvegar í heiminum. Hugað verður að skólastarfi á Ísland, álitamál í uppeldis- og skólastarfi verða skoðuð sem og uppbygging menntamála með gagnrýnu hugarfari.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi við að beita vísindalegum aðferðum við rannsóknir.
- helstu hugtök og kenningar uppeldisfræðinnar
- hagnýtu gildi uppeldisfræðinnar
- framlag uppeldisfræðinnar til vísinda og samfélags
- siðferði við rannsóknir
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita grunnhugtökum uppeldisfræðinnar
- útskýra helstu hugmyndir sem mótað hafa fræðigreinina
- lesa í og skilja niðurstöður mikilvægra rannsókna í uppeldisfræði
- afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
- nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
- tjá kunnáttu sína skýrt og skilmerkilega í orði og riti
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig á gagnrýninn hátt um afmarkaða efnisþætti uppeldisfræðinnar
- sækja þekkingu úr öðrum greinum til aukins skilnings á viðfangsefninu og yfirfæra þekkingu á aðrar greinar til þess að sjá vísindalegt samhengi
- vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
- sýna sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum
- afla, meta og nota heimildir á viðurkenndan hátt
- sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
- hagnýta uppeldisfræðina í daglegu lífi á jákvæðan hátt