Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR3FF05

Í boði fyrir: Félagsgreinabraut, kjörnámsbraut og mála- og menningarbraut
Námsefni: Frá kennurum
Námsmat: Ákvarðast af kennara
Annað: Telst til sérgreina félagsgreinabrautar, kjörnámsbrautar og mála- og menningarbrautar

Áfanginn er framhald af áfanganum STÆR3FF05 og í honum eru tekin næstu skref í fallafræði. Í áfanganum er unnið með heildun til að finna flatarmál svæðis á milli ferla falla, heildunaraðferðir (hlutheildun, innsetningaraðferð og stofnbrotsliðun), fyrsta stigs diffurjöfnur og fylki.