Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR3HE05 eða STÆR3GX05
Fyrir: Heilbrigðisbraut, náttúrufræðibraut, raungreina- og tæknibraut
Námsmat: Verkefni og próf
Annað: Áfanginn telst til sérgreina heilbrigðisbrautar, náttúrufræðibrautar og raungreina- og tæknibrautar
Farið er í grundvallarhugtök í línulegri algebru sem nýtast nemendum í frekara námi í raunvísindum, t.a.m. stærð-, verk- og tölvunarfræði. Helstu efnisþættir áfangans eru línuleg jöfnuhneppi, vigurrúm og hlutrúm þeirra, línulegt óhæði og span vigra, línulegar varpanir, fylki og helstu aðgerðir á þeim, ákveður, eigingildi, hornalínugerningur og einföld dæmi um hagnýtingu línulegrar algebru. Kennslan fer fram í formi fyrirlestra og dæmatíma, en mikil áhersla er lögð á að nemendur gefi sér góðan tíma til þess að reikna dæmi og leysa verkefni með þeim aðferðum sem kenndar eru í áfanganum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- línulegum jöfnuhneppum og lausnum þeirra
- grundvallareiginleikum vigurrúma
- fylkjum og helstu aðgerðum á þeim
- einfaldri hagnýtingu á línulegri algebru
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leysa línuleg jöfnuhneppi
- beita einföldum fylkjaaðgerðum
- skrifa hagnýt verkefni upp á tungumáli línulegrar algebru, og leysa þau í kjölfarið
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leysa hagnýt verkefni með stærðfræðilegum aðferðum
- lesa texta þar sem unnið er með stærðfræðilegar frumsendur og skilgreiningar
- koma frá sér úrlausnum á stærðfræðilegum verkefnum með skiljanlegum hætti, jafnt í rituðu máli sem töluðu