Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR2LÁ05 og STÆR3FF05

Í boði fyrir: Félagsgreinabraut, heilbrigðisbraut, kjörnámsbraut og mála- og menningarbraut
Námsefni: Efni frá kennara
Námsmat: Verkefni og próf
Annað: Áfanginn telst til sérgreina félagsgreinabrautar, kjörnámsbrautar og mála- og menningarbrautar

Áfanginn er ætlaður nemendum í 3. bekk á FB, HB, KB og MMB , sérstaklega þeim sem vilja bæta við sig 3. þreps áfanga í stærðfræði, eins og tilgreindur er sem æskilegur undirbúningur fyrir ýmiskonar nám í háskóla.

Í áfanganum er farið yfir ýmis konar fjármálaútreikning, svo sem hefðbundinn vaxtaútreikning, fyrir fram greidda vexti og eftir á greidda vexti ásamt ýmsum vaxta- og viðskipathugtökum sem nauðsynlegt er að þekkja. Einnig er fjallað um launaútreikninga og ýmis lánaform svo sem yfirdrátt, skuldabréf, víxla, bílalán og húsnæðislán. Fjallað er um jafngreiðsluraðir og jafngreiðslulán, núvirðisútreikninga og fleira. Notaðar eru aðferðir út fyrri áföngum. Markmið áfangans eru að nemendur fái að kljást við eins raunveruleg dæmi og hægt er og áskoranir sem mæta þeim í náinni framtíð.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • skiptareikningi og notkun hans
  • prósentureikningi
  • launaútreikningum og skilum á launatengdum gjöldum
  • vaxtaúrteikningum, einföldum og vaxtaútreikningi á lánum
  • vaxtavöxtum
  • verðtryggðum lánum
  • óverðtryggðum lánum
  • vísitölum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita skiptareikningi
  • nota prósentureikning til að finna verð með eða án afsláttar, afsláttarprósentu eða álagningu
  • reikna vexti af víxlum, skuldabréfum og yfirdráttarlánum
  • reikna laun og launatengd gjöld ásamt því að setja upp launaseðil
  • beita vaxtareikningi og vaxtavaxtareikningi
  • geta fram- og afturvirkt greiðslur
  • reikna afborganir lána með jöfnum greiðslum
  • reikna afborganir lána með jöfnum afborgunum

Hæfnisviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skipta kostnaði hlutfallslega rétt milli aðila
  • hafa góðan skilning á hugtakinu prósentur og getað reiknað afslætti, álagningu og annað í daglegu lífi
  • yfirfara eigin launaseðla
  • geta tekið afstöðu til mismunandi fjármögnunarleiða á bifreiðum eða öðrum tækjum
  • skipuleggja eigin sparnað t.d. fyrir bíl eða húsnæði
  • taka afstöðu til vaxtakjara og hvaða áhrif vextir og lánstími hafa á heildar skuldastöðu
  • taka afstöðu til mismunandi lána, jafngreiðslulána eða lána með jöfnum afborgunum