Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: ÞÝSK1CC05
Í boði fyrir: Allar brautir
Námsmat: Áfanginn er próflaus og þurfa nemendur að taka þátt í ferðinni, ásamt því taka þátt í öllum þáttum undirbúnings og úrvinnslu. Ekki eru gefnar einkunnir í áfanganum heldur fá nemendur L (lokið) eða F (fallið) fyrir áfangann
Kostnaður: Nemendur greiða ferðakostnað
Annað: Áfanginn telst til sérgreina brauta á mála- og menningarbraut og hafa nemendur á þeirri braut forgang í áfangann svo fremi að þeir uppfylli reglur skólans um mætingar. Hámarksfjöldi nemenda í áfangann er 25
Í áfanganum kynna nemendur sér sögu og menningu Berlínarborgar, áhugaverða staði og daglegt líf íbúa og undirbúa þannig með aðstoð kennara ferðalag til Berlínar. Nemendur vinna ýmis verkefni fyrir ferðina, í ferðinni og eftir að heim er komið. Þeir undirbúa langa helgi í Berlín með því að setja sig inn í sögu borgarinnar, samgöngur, áhugaverða staði og annað sem vert er að skoða eða gera og kynna það fyrir hópnum. Sameiginlega verður síðan ákveðið hvað á að skoða í Berlín og dagskrá ferðarinnar búin til. Einnig æfa nemendur sig í hagnýtu talmáli sem felst að mestu í upprifjun á orðaforða og málnotkun með áherslu á dagleg samskipti.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mannlífi, menningu og siðum í þýskumælandi löndum
- samskiptavenjum og mismunandi notkun málsins eftir aðstæðum
- menningu og sögu svæðisins
- aðferðum, tækjum og tólum til að búa til árangursríkt kynningarefni
- mikilvægi góðrar tungumálakunnáttu, jafnt í íslensku sem erlendum málum, og færni til að beita henni við munnlega og skriflega kynningu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja talað mál um kunnugleg efni
- lesa margs konar gerðir texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
- afla sér hagnýtra upplýsinga
- skrifa frásagnir um ýmis efni
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn, svo sem orðabækur og smáforrit
- greina skilmerkilega frá því sem fyrir augu ber í kynnisferðum
- útbúa kynningarefni á mismunandi formi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja daglegt mál og bregðast rétt við
- fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega, um efni sem hann hefur kynnt sér
- tjá eigin skoðanir og persónulega reynslu
- lesa og túlka upplýsingar til að bjarga sér í þýskumælandi landi
- beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum og leysa úr málum sem upp geta komið
- tileinka sér efni mismunandi texta og geta dregið ályktanir um efni þeirra
- leysa úr viðfangsefnum, einn eða í samstarfi við aðra
- meta eigið vinnuframlag og framfarir
- sýna aga, metnað, sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og trú á eigin getu