Í áfanganum er megináhersla lögð á hlutverk fjölmiðla sem fjórða valdið. Hlutverk fjölmiðla í samfélagsumræðunni og dagskrárvald þeirra er til umfjöllunar. Fjallað er um fjölmiðla í smáum samfélögum og nálægðarvandann sem þeir glíma við. Rýnt er í hlutverk ritstjórna í fjölmiðlum og þekkt mál í sögu nútímafjölmiðlunar. Nemendur afla sér þekkingar á helstu straumum og vörðum í sögu fjölmiðlunar á Vesturlöndum. Nemendur ræða og taka afstöðu til umfjöllunar miðlanna á álitamálum samfélagsins hverju sinni.
Þekkingarviðmið
hugmyndinni um fjórða valdið og mikilvægi þess í lýðræðisþróun samfélagsins
helstu hugtökum fræðigreinarinnar
eðlismun ritstjórna fjölmiðla í stórum og smáum samfélögum
mótunarafli og áhrifavaldi fjölmiðla í samfélaginu
Leikniviðmið
beita hugtökum sem hann lærir í áfanganum
greina á milli ólíkra ritstjórnastefna s.s. út frá pólitískri stefnu fjölmiðilsins eða eignarhaldi
afla sér gagna úr fjölmiðlum og greina þau
Hæfnisviðmið
nota fjölmiðla til að greina samfélagslega atburðarás og framvindu mála í samfélaginu
hagnýta sér fjölmiðla með því að þekkja eiginleika þeirra og bakland