Pétur Benediktsson (tv) og Bjarni Benediktsson (th). Á milli þeirra er umrædd blaðsíða í bókinni dul…
Pétur Benediktsson (tv) og Bjarni Benediktsson (th). Á milli þeirra er umrædd blaðsíða í bókinni dularfullu.

Í ársbyrjun greindum við frá fagurlega skreyttri glósubók í ensku sem fannst á lofti Gamla skóla. Við vitum ekki hversu gömul bókin er og okkur hefur ekki tekist að hafa upp á eiganda hennar. Við teljum þó að rekja megi bókina til miðbiks 20. aldar. Við lumum á fleiri dularfullum stílabókum frá fornu fari sem innihalda teikningar nemenda eða starfsfólks skólans. Meðfylgjandi mynd sýnir blaðsíðu úr annarri bók sem fannst við tiltekt og geymd er á vísum stað í skólanum. Henni svipar til hinnar fyrri að útliti og inniheldur handskrifaðan texta og teiknaða mynd með litum. Bókin geymir nöfn fimmtán einstaklinga og svo virðist sem þar séu komin nöfn eigenda hennar. Ártöl fylgja hverjum og einum. Ólíkt glósubókinni, vitum við hverjir áttu bókina og hvenær. En þegar kemur að raunverulegu notagildi bókarinnar, hvaða hlutverki henni var ætlað, stöndum við á gati. Efst á blaðsíðunni má greina orðasamband: „Eigendur bókar þessarar“. Þar undir eru nöfnin og ártölin sem spanna u.þ.b. fimmtán ár, frá þriðja áratugnum til ársins 1942. Sumir af þeim sem skráðir eru eigendur voru nemendur við skólann, aðrir ekki. Fyrstu tveir eigendur bókarinnar, samkvæmt upptalningunni, voru bræðurnir Pétur Benediktsson og Bjarni Benediktsson. Svo virðist sem starfsheitum hafi á seinni stigum verið bætt við nöfnin: „Pétr Benediktsson chargé d'affaire í London, Bjarni Benediktsson borgarstjóri Rvík forsætisráðherra“ o.s.frv. Síðast en ekki síst er andlitsmynd af manni, teiknuð með blýanti og penna sem gædd er lífi með daufum litum. Við vitum ekki hver maðurinn á myndinni er. Undir myndinni er nafn, líklega þess sem myndin er af eða listamannsins. Eins og sjá má vitum við lítið um þessa dularfullu bók sem fannst í geymslu skólans. Kannski var bókin í eigu leynifélags. Kannski er þetta allt saman tilbúningur, létt grín hjá nemanda sem leiddist í tíma á fyrri hluta 20. aldar.