Nemendur á útiíþróttasvæðinu í MA
Nemendur á útiíþróttasvæðinu í MA

MA-ingar eru mörg á kafi í íþróttum og innan skólans er landsliðsfólk i íshokkí, fimleikum, skautum, golfi, skíðum og boltaíþróttum – og mögulega gleymist einhver grein. Skólinn kemur til móts við nemendur með sveigjanleika í mætingu og með undanþágu frá skólaíþróttum. Nú geta nemendur einnig sótt um að fá landsliðsverkefni metin sem valgrein. Nemendur fylla út umsóknareyðublað og skila í afgreiðslu skólans eða til brautastjóra.