Rögnvaldur til hægri á menntaskólaárunum. Kennedy til vinstri við Hvíta Húsið.
Í haust sögðum við frá ferðalagi Önnu Katrínar Emilsdóttur til Bandaríkjanna í ársbyrjun 1956 þar sem hún hitti m.a. þáverandi forseta Bandaríkjanna, Dwight D. Eisenhower. Anna Katrín var á þessumt tíma nemandi við MA og hafði unnið ritgerðasamkeppni sem bandaríska dagblaðið New York Herald Tribune efndi til haustið 1955. Verðlaunin voru ekki af verri endanum, fjögurra mánaða dvöl í landi tækifæranna.
Annar nemandi við MA vann sömu keppni sex árum síðar og hlaut sömu verðlaun og Anna Katrín, ferð til Ameríku og námsdvöl þar á vegum áðurnefnds blaðs um nokkurra mánaða skeið. Rögnvaldur Hannesson hóf nám við MA í lok sjötta áratugarins. Hann útskrifaðist vorið 1963. Rögnvaldur var virkur í félagsmálum innan veggja skólans, hann var t.a.m. ritstjóri Munins um tíma. Tíðindamaður skólablaðsins fór á fund Rögnvaldar vorið 1962 og ræddi við hann, m.a. um ferðalagið til Ameríku. Frásögn Rögnvaldar birtist í vorútgáfu Munins 1962.
Eins og kunnugt er, var Rögnvaldur Hannesson nýlega kjörinn ritstjóri Munins fyrir næsta skólaár, og óskar fráfarandi ritnefnd honum alls velfarnaðar í starfinu.
Af þessu tilefni fór tíðindamaður blaðsins á fund hans.
— Má ég ekki taka við þig viðtal fyrir blaðið, Rögnvaldur?
— Jú, jú, fyrst það er fyrir blaðið, en ég er nú að sökkva mér niður í hið göfuga tungumál frönsku, svo að það má ekki vera of langt
— Þú ert nýkominn frá Ameríku, er mér tjáð.
— Já, svo er mér líka tjáð. Ég kom þaðan 28. marz, en fór þangað skömmu fyrir jól. Ferðin var verðlaun í ritgerðasamkeppni stórblaðsins New York Herald Tribune.
— Er mikil þátttaka í þeirri samkeppni?
— Við vorum þarna frá 37 löndum, og var skipt niður í nokkra hópa. Þátttaka hér á landi var heldur dræm, að því er ég bezt veit, og ég vil benda mönnum á, að þarna er ágætt tækifæri til þess að sjá sig um í heiminum.
— Og hvar dvaldist þú í Bandaríkjunum?
— Aðallega í New York. Ég bjó þar á þrem heimilum, fyrst hjá gyðingapresti, og sótti ég mér andlegan styrk í hof hans. Síðan dvaldist ég hjá kaupsýslumanni einum, sem hgsaði mestmegnis í dollurum. Á heimili hans sá ég aðeins eina bók, alfræðiorðabók, sem hann hafði fengið að láni. Hins vegar skrapp hann eitt sinn til Ber-Gyðingi, [hér virðist sem texti greinarinnar hafi misfarist – innsk] en sá var trúlaus, lögfræðingur, sem hafði á sínum tíma staðið í málaþrasi gegn McCarthy og hinni óamerísku nefnd hans.
— Þú hefur ekki lent í klónum á þeirri nefnd?
— Nei, það er eitthvað farið að draga af henni, því að það hafði engin eftirköst, þótt ég talaði harla opinskátt á stundum, t.d. í samræðum eins hópsins, sem voru fluttar í sjónvarpinu. Ég sagði þar, að Íslendingar væru ekkert hræddir við sósíalisma og mundu koma honum á, að svo miklu leyti sem þeir teldu borga sig. Það eru ýmsir í Ameríku haldnir móðursýkishræðslu við kommúnismann, en margir vilja líka ræða þau mál skynsamlega og komast að niðurstöðu.
— Vel á minnzt, sjónvarpið, hefur álit þitt á því breytzt nokkuð frá því á málfundinum fyrir jól?
— Síður en svo. Þar sem hin „frjálsa samkeppni“ augiýsenda ræður að mestu leyti sjónvarpsefninu, fer það aldrei upp fyrir meðallag að gæðum. Þó er hver stöð skyld að flytja visst magn af góðu efni, en það er yfirleitt á morgnana, þegar enginn hefur tíma til að horfa á það.
— Þú hefur ferðazt eitthvað um?
— Við fórum til Washington og ræddum lítið eitt við Kennedy á tröppum Hvíta hússins. Hann sagðist vilja vinsamleg samskipti við allar þjóðir, og kem ég því hér með á framfæri. Svo fórum við í Sameinuðu þjóðirnar og hlustuðum á umræður. Þá var verið að greiða atkvæði um Angólamálið, og voru allir mættir nema Portúgalar og Íslendingar. Dr. Ralph Bunche hélt fyrir okkur erindi um S. þ., mjög fróðlegt. Einnig fórum við til Suðurríkjanna.
Seinni hluta viðtalsins má nálgast hér.
Heimild: Muninn 34. árgangur, 4. tbl.