„Það er komið nóg af þessari brjálæðislegu vígvæðingu. VIÐ VILJUM FRIГ skrifar nemandi í 3. bekk á aðventu 1986
Um þessar mundir eru 40 ár liðin frá leiðtogafundinum í Höfða. Tveir nemendur í þriðja bekk, þeir Ófeigur Örn Ófeigsson í 3A og Hlynur Hallsson í 3U, skiptust á skoðunum um stöðu heimsmála á síðum blaðsins haustið 1986 og fram á vorið 1987. Upphafið að skoðanaskiptum þeirra félaga var grein sem Ófeigur skrifaði undir yfirskriftinni „Vígbúnaðarkapphlaup“ og birtist í blaðinu þremur vikum eftir fund Reagans og Gorbatsjov. Grein Hlyns „Friður eða vígvæðing“ birtist mánuði síðar í jólablaði Munins árið 1986.
Friður eða vígvæðing
Við lifum á einkennilegum tímum. Meðan milljónir manna þjást úr hungri og fátækt er útbreidd víða um heim eru útgjöld til hermála aukin hrikalega.
Til hermála í ár mun verða eytt um 900 milljörðum dollara (níu með ellefu núllum á eftir). Þetta samsvarar því að 70 milljónum ísl. króna sé eytt á HVERRI MÍNÚTU til hernaðar. Þetta er svo geðveikislegt að maður á erfitt með að trúa því að það sé staðreynd. Sovétríkin eyða t.d. helmingi hærri upphæð til framleiðslu drápstækja og hernaðaruppbyggingar en til menntunar og heilbrigðismála samanlagt. Þróunarríkin hafa aukið útgjöld sín til hernaðar sexfalt á síðustu tveim áratugum, þrátt fyrir að fólkið í löndunum búi við algjöra örbirgð.
Sem betur fer er almenningur að vakna til vitundar um þessi mál og á síðustu árum hafa verið stofnaðar margar friðarhreyfingar víða um heim. Einnig hafa starfsstéttir stofnað með sér friðarsamtök t.d. eðlisfræðingar og læknar. Samtök lækna gegn kjarnorkuvá fengu einmitt friðarverðlaun Nóbels á síðasta ári. Þessar starfsstéttir vita betur en aðrar hvílíkar afleiðingar kjarnorkustríð eða slys hefði í för með sér. Fólk er farið að sjá að í krafti sameiningar getur það breytt viðhorfum þeirra sem stjórna í heiminum.
Sem dæmi um þetta er tilraunabann Sovétmanna á kjarnorkusprengingum en því miður hefur Bandaríkjastjórn ekki farið að fordæmi þeirra. Bandaríkjastjórn hefur haldið áfram kjarnorkusprengingum þrátt fyrir andstöðu almennings.
Í ár er alþjóðlegt friðarár Sameinuðu þjóðanna. Því miður hefur fulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum setið hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu Svíþjóðar, Mexíkó og fleiri ríkja um algera "frystingu" framleiðslu kjarnorkuvopna. Allir fulltúar hinna Norðurlandanna hafa greitt tillögunni atkvæði sitt. Það vekur því eftirtekt þegar Íslendingar, þessi "friðelskandi" þjóð, situr hjá í svo mikilvægu máli.
Mikið hefur verið rætt og ritað (misjafnlega gáfulegt) um stjömustríðsáætlun Reagans forseta Bandaríkjanna. Það er ljóst að þessi "varnarvopn" koma ekki til með að verja fólk heldur aðeins skotpalla eldflauga.
Meðal Bandarískra vísindamanna var gerð könnun, sem sýnir greinilega að þeir eru á öndverðum meiði við Reagan forseta og hernaðarráðgjafa hans. Aðeins 15% vísindamannana töldu geimvarnaáætlunina (Strategic Defence Initiative) verja landið. 58% bandarískra vísindamanna töldu að þessi áætlun myndi herða vígbúnaðarkapphlaupið auk þess sem þeir bentu á að auðvelt væri að eyðileggja þetta kerfi.
Í síðasta tölublaði Munins var grein eftir Ófeig Ö. Ófeigsson félaga minn þar sem hann lofsyngur þessa áætlun. Í þeirri grein sýnir hann sjálfur hinsvegar fram á tilgangsleysi þessara vopna þegar hann segir: "Sovétmenn beindu einfaldlega flugskeytum sínum á önnur skotmörk og kjarnorkuvetur og gífurleg mengun yrðu óhjákvæmileg". Það er einmitt þetta sem sýnir að hvert ríki sem ræður yfir kjarnorkuvopnum getur á þennan hátt farið framhjá kerfinu.
Ófeigur segir einnig að það sé kjaftæði að leysivopn verði hættulegri en kjarnorkuvopn. Það er rétt að eyðingarmáttur kjarnorkuvopna er mun meiri en hinsvegar geta leysivopnin hrundið af stað nýju vígbúnaðarkapphlaupi sem gæti haft skelfilegar afleiðingar í för rneð sér. Stjörnustríðsáætlunin og geislavopnin hafa þegar haft slæm áhrif. Á Reykjavíkurfundinum voru það þau sem komu í veg fyrir að sögulegu samkomulagi yrði náð. Og það er ljóst að kerfið mun verða þröskuldur í vegi afvopnunarviðræðna í framtíðinni.
Andstaða við vígvæðingu himingeimsins er almenn. Til dæmis var samþykkt ályktun á kirkjuþingi þessa efnis og einnig var hvatt til að Ísland yrði lýst kjarnorkuvopnalaust svæði.
Fólk er farið að skilja hverjar afleiðingarnar af þessu kapphlaupi stórveldanna verða. Nú þarf aðeins á hugarfarsbreytingu hjá leiðtogunum að halda, svo þeir hætti að láta hemaðarsinna og vopnaframleiðendur draga sig á asnaeyrum.
Það er komið nóg af þessari brjálæðislegu vígvæðingu. VIÐ VILJUM FRIÐ.
(Greinin er að hluta unnin upp úr skýrslu alþjóðlegra friðarhópa og kirkjusamtaka um útgjöld til hermála.)
Hlynur Hallsson.
Heimild: Muninn 59. árgangur, 2. tbl.