Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ENSK3BS05
Áfanginn er lokaáfangi á mála- og menningarbraut. Hann byggir á lestri klassískra bókmennta og bókmenntasögu, smíði ritgerða og munnlegri kynningu. Textar og annað efni er valið í ljósi áherslna sviðsins. Áhersla er lögð á að þjálfa nemendur enn frekar í læsi á krefjandi textum þeim til gagns og ánægju. Nemendur þurfa að undirbúa og standa skil á tímaritgerð upp úr skáldsögu. Farið er yfir bókmenntatímabil og bókmenntaverk frá lokum 19. aldar til vorra daga.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi bókmennta í menningu þjóða, sér í lagi 19. og 20. aldar bókmenntum frá Bretlandi og Bandaríkjunum.
- bókmenntaverkum eftir valda höfunda.
- þeim bókmenntatímabilum sem fjallað er um.
- hefðum sem eiga við um talað og ritað mál mismunandi málsnið
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram
- skilja vel sérhæfða og krefjandi texta á sviði sem hann þekkir
- skilja algeng bókmenntahugtök og geta beitt þeim af nokkru öryggi
- geta tjáð sig af öryggi um margvísleg málefni, bæði almenn og persónuleg, ef viðfangsefni er undirbúið fyrirfram
- beita ritmálinu í mismunandi tilgangi
- lesa sér til gagns texta sem gera miklar kröfur til lesandans
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni sem hann hefur þekkingu á
- skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni, málfars- eða bókmenntalegs eðlis.
- greina sögulegt, menningarlegt og/eða bókmenntalegt samhengi texta í bókmenntaverkum og textum tengdum þeim
- hagnýta fræðitexta um tungumál og bókmenntir og meta heimildir á gagnrýninn hátt t.d. við ritgerðasmíð
- geta flutt vel uppbyggða frásögn, rökstutt mál sitt og brugðist við fyrirspurnum
- beita af öryggi grundvallarrithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmáli með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlagi